Fotbolti.net
16.05.21 - 13:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Ítalía: Napoli lagði Fiorentina - Varmarkvörður sá rautt

Insigne skoraði í dag

Insigne skoraði í dag

Canon

Mynd: EPA

<b>Fiorentina 0 - 2 Napoli</b>
0-0 Lorenzo Insigne ('56 , Misnotað víti)
0-1 Lorenzo Insigne ('56 )
0-2 Lorenzo Venuti ('67 , sjálfsmark)
<u>Rautt spjald:</u> Bartomiej Dragowski ('56, Fiorentina)
Naoli vann öflugan 0-2 útisigur á Fiorentina í morgun og tryggði sér þrjú dýrmæt stig í Meistaradeildarbaráttunni.

Lorenzo Insigne kom Napoli yfir þegar hann fylgdi á eftir vítaspyrnu sinni á 56. mínútu. Pietro Terracciano varði spyrnuna en frákastið féll fyrir Insigne.

Vítið var dæmt eftir skoðun í VAR og var Dragowski, varamarkvörður Fiorentina, svo ósáttur með dóminn að hann var rekinn af bekknum með rautt spjald.

Lorenzo Venuti varði svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 67. mínútu og kom það mark Napoli í 0-2. Napoli var sterkara liðið í dag og verðskuldaði sigurinn.

Liðið er í 3. sæti með 76 stig þegar ein umferð er eftir. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan og má sjá að baráttan er hörð um Meistaradeildarsæti!

Leikir dagsins:
Udinese 13:00 Sampdoria
Benevento 13:00 Crotone
Parma 16:00 Sassuolo
Milan 18:45 Cagliari

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.