mán 16. maí 2022 14:15
Elvar Geir Magnússon
Chelsea að blanda sér í baráttuna um Lewandowski?
Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski.
Mynd: Getty Images
Guardian segir að Chelsea gæti blandað sér í baráttuna um Robert Lewandowski, pólska sóknarmanninn hjá Bayern München.

Lewandowski er 33 ára og hefur ekki viljað framlengja samning sinn við Bayern, sem er til sumarsins 2023.

Sögusagnir hafa verið í gangi um að hann vilji ganga í raðir Barcelona og jafnvel sagt að hann hafi gert munnlegt samkomulag við félagið.

Barcelona er að vinna í því að reyna að fá Lewandowski en Bayern segir að hann sé ekki til sölu og honum verði haldið hjá félaginu þar til samningurinn rennur út.

Fróðlegt verður að sjá hvort Bayern muni á endanum telja það best að fá inn pening fyrir Lewandowski í stað þess að missa hann á frjálsri sölu eftir eitt ár.

Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, er sagður mikill aðdáandi Lewandowski sem hefur skorað 343 mörk síðan hann gekk í raðir Bayern 2014.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner