Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 16. júní 2021 06:00
Victor Pálsson
Miazga kemur aftur til Chelsea
Mynd: Getty Images
Matt Miazga mun ekki spila annað tímabil með Anderlecht í annað tímabil en hann var þar í láni frá Chelsea.

Þetta kemur fram í fréttum dagsins en Miazga stóð sig með prýði fyrir Anderlecht á síðasta tímabili.

Þessi 25 ára gamli leikmaður er samningsbundinn Chelsea til 2022 en enska félagið mun reyna að framlengja þann samning eða selja hann í sumar.

Miazga á klárlega enga framtíð fyrir sér í London en hann sagðist sjálfur vilja vera áfram í Belgíu. Anderlecht telur hann þó vera og dýran og mun ekki reyna að fá Bandaríkjamanninn aftur.

Miazga kom til Chelsea árið 2016 en spilaði aðeins tvo deildarleiki fyrir félagið. Hann hefur verið lánaður til liða eins og Vitesse, Nantes og Anderlecht.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner