Það vakti athygli í vikunni þegar Cristiano Ronaldo færði kókflöskur í burtu þegar hann sat fyrir svörum á blaðamannafundi. Ronaldo færði flöskurnar úr augsýn og hvatti fólk til að drekka vatn.
Paul Pogba sat fyrir svörum eftir leik Frakklands og Þýskalands í gær og færð einnig drykk í burtu.
Paul Pogba sat fyrir svörum eftir leik Frakklands og Þýskalands í gær og færð einnig drykk í burtu.
Pogba færði reyndar ekki kókflöskuna sem var á borðinu heldur óáfengan Heineken bjór. Heineken og Coca Cola eru styrktaraðilar keppninnar.
Umræða skapaðist á samfélagsmiðlum í kjölfarið á þessu og er bent á að Pogba sé múslími og drekki ekki áfengi.
Pogba var valinn maður leiksins eftir 1-0 sigur Frakklands í gær og má sjá hann færa flöskuna í myndbandinu hér að neðan.
Pogba doing a Ronaldo 👀 pic.twitter.com/Tsbdgjv24n
— ESPN FC (@ESPNFC) June 16, 2021
Athugasemdir