Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. júní 2022 23:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: Dalvík/Reynir á toppinn - Kári með tvo í röð
Úr leik Dalvíkur/Reynis og Sindra á síðasta tímabili. Þessi lið eru að berjast á toppnum.
Úr leik Dalvíkur/Reynis og Sindra á síðasta tímabili. Þessi lið eru að berjast á toppnum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Andri gerði tvö af vítapunktinum.
Andri gerði tvö af vítapunktinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dalvík/Reynir endurheimti toppsætið í 3. deild karla með sigri gegn Kormáki/Hvöt á heimavelli í kvöld.

Dalvíkingar höfðu tapað tveimur leikjum í röð og Kormákur/Hvöt hafði tapað þremur í röð áður en flautað var til leiks á Dalvík. Heimamenn gengu frá leiknum með því að komast í 3-0 á fyrstu 23 mínútum leiksins. Leiðin til baka var mjög erfið fyrir Kormák/Hvöt eftir það.

Lokatölur voru 4-2 fyrir Dalvík/Reyni sem er núna á toppnum með 15 stig, en Sindramenn og KFG geta náð þeim með því að vinna leikinn sem þau eiga inni. Kormákur/Hvöt er núna í fallsæti, 11. sæti með sex stig.

Víðir Garði er í öðru sæti deildarinnar með 13 stig eftir jafntefli gegn Vængjum Júpiters áðan. Þar komu bæði mörkin í fyrri hálfleik í 1-1 jafntefli. Vængir eru í sjöunda sæti með tíu stig.

Og þá vann Kári annan leik sinn í röð er þeir höfðu betur gegn Augnablik í sex marka leik, 2-4. Kári er í sjötta sæti með tíu stig og er Augnablik einnig með tíu stig í áttunda sæti.

Augnablik 2 - 4 Kári
0-1 Andri Júlíusson ('29 , Mark úr víti)
1-1 Bjarni Harðarson ('51 )
1-2 Andri Júlíusson ('55 , Mark úr víti)
2-2 Jón Veigar Kristjánsson ('58 )
2-3 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('62 )
2-4 Arnar Már Kárason ('89 )

Dalvík/Reynir 4 - 2 Kormákur/Hvöt
1-0 Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('9 )
2-0 Númi Kárason ('19 )
3-0 Jóhann Örn Sigurjónsson ('23 )
3-1 Ante Marcic ('24 )
4-1 Þröstur Mikael Jónasson ('58 )
4-2 Sigurður Bjarni Aadnegard ('78 , Mark úr víti)

Vængir Júpiters 1 - 1 Víðir
0-1 Aron Freyr Róbertsson ('12 )
1-1 Jónas Breki Svavarsson ('25 )
Athugasemdir
banner
banner
banner