Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 18:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Láki: Teljum að það sé að bæta einstaka leikmenn mikið
'Það bæði kostaði okkur en gaf líka góðar stöður á vellinum.'
'Það bæði kostaði okkur en gaf líka góðar stöður á vellinum.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Páll hefur komið sterkur inn eftir meiðsli lykilmanna.
Sverrir Páll hefur komið sterkur inn eftir meiðsli lykilmanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefnt á að Oliver snúi aftur um miðjan júlí.
Stefnt á að Oliver snúi aftur um miðjan júlí.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrra mark Breiðabliks leit svolítið furðulega út. Marcel Zapytowski kom engum vörnum við.
Fyrra mark Breiðabliks leit svolítið furðulega út. Marcel Zapytowski kom engum vörnum við.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var jafn leikur, mjög fá færi, Breiðablik fær kannski fjögur færi og við þrjú. Auðvitað er fyrsta markið slysalegt, öll mörk koma eftir mistök. Við höfum ekki verið að dvelja við eitthvað svoleiðis," segir Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, við Fótbolta.net.

Spurt var út í leikinn gegn Breiðabliki í gær, en Blikar fóru með stigin þrjú frá Eyjum.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  2 Breiðablik

„Við reyndum að spila í gegnum miðjunni, en Breiðablik fór í það að spila langt og vinna annan bolta, þannig var leikmyndin. Ég var gríðarlega ánægður með hvernig við spiluðum, höfum lagt áherslu á að reyna spila í gegnum miðjuna og teljum að það sé að bæta einstaka leikmenn mikið. Það gekk vel, en í fyrri hálfleik töpum við boltanum svolítið út frá því sem er kannski afleiðing að vera reyna að spila í gegnum miðjuna, eða stutt, á grasi. Það þarf rosalega góða móttöku á boltanum þar sem völlurinn er hægari en gott gervigras. Það bæði kostaði okkur en gaf líka góðar stöður á vellinum. Þetta er eitthvað sem við viljum gera."

„Við vorum sáttir með leikinn í heildina þangað til þeir skora annað markið, þá fannst mér við ekki vera líklegir til að fá eitthvað út úr leiknum, en fram að því fannst mér þetta mjög jafn leikur og var þokkalega sáttur við hann."


Vantaði svolítið upp á
Hvað vantaði upp á svo ÍBV myndi skora mark í leiknum?

„Í fyrri hálfleik fáum við tvö góð færi, eitt dauðafæri og svo fær Sverrir (Páll Hjaltested) gott skallafæri. Hjá okkur má alltaf minna og minna bregða út af, því það vantar töluvert marga leikmenn hjá okkur. Tvíeykið (Oliver Heiðarsson og Omar Sowe) er búið að vera frá í svolítinn tíma og svo er Bjarki (Björn Gunnarsson) meiddur. Aðrir þurfa allir að vera á sínum degi, megum ekki við einhverjum frávikum í viðbót þegar það vantar þrjá sterka sóknarlega. Sverrir er búinn að spila gríðarlega vel og spilaði að mínu mati mjög vel í gær líka þó að hann hafi ekki skorað. Í gær vantaði svolítið upp á á síðasta þriðjungi."

Hentar ekki betur að spila á grasi
Hvað fannst þér um aðstæður í gær?

„Fótboltinn sem við spilum hentar okkur allavega ekki síður á gervigrasi. Við erum ekki 'leið eitt lið' sem er að negla fram og reyna vinna annan bolta, við erum ekki mikið að leggja upp úr því. Það er bara orðið svo mikill munur á grasvöllum almennt og gervigrasvöllum. Á gervigrasvöllunum er völlurinn bleyttur vel fyrir leiki til þess að ná sem mestum hraða. Það er almennt séð, allavega hjá okkur og á Akranesi (ÍBV á eftir að spila í Kaplakrika), hægari leikir á grasi. Leikirnir eru ekkert endilega betri, en það er meiri hraði á gervigrasinu, nema það sé bara skraufaþurrt. Það er munur og verður alltaf," segir Láki.

Þjálfarinn hafði góðar fréttir að segja af Oliver Heiðarssyni, hann er laus við hækjur og getur farið að labba og skokka. Eyjamenn vonast eftir honum í kringum miðjan júlí í leik.

Liðið tekur það á kassann
Láki talaði um klaufagang í fyrra markinu sem kom upp úr fyrirgjöf frá Ágústi Orra Þorsteinssyni og fór af Sigurði Arnari Magnússyni í netið. Ertu svekktur með Marcel í því marki?

„Fyrra markið kemur eftir mistök frá okkur, missum boltann og fáum á okkur skyndisókn í staðinn. Ég held að okkur finnist öllum við geta brugðist betur við, en liðið tekur það bara á kassann. Við erum rosa lítið að spá í fortíðina. Marcel á að verja markið okkar, hefði getað gert betur, en það voru nokkrir leikmenn fyrir framan getað gert betur líka," segir Láki að lokum.
Athugasemdir
banner