16.08.12 - 11:03
Daníel Freyr Jónsson
Vurnon Anita til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur gengið frá kaupunum á varnarmanninum Vurnon Anita frá Ajax.
Hinn 23 ára gamli Anita gekkst undir læknisskoðun fyrr í þessari viku og hefur hann núna skrifað undir fimm ára samning á St. James\' Park.
Anita spilar sem vinstri bakvörður en getur einnig leikið á miðjunni. Hann hafði verið orðaður við Newcastle í þó nokkurn tíma.
Talið er að Newcastle greiði Ajax rúmlega 6 milljónir punda fyrir leikmanninn og eru þetta fjórðu kaup Alan Pardew í sumar.
Anita á að baki þrjá landsleiki fyrir hollenska landsliðið, en á ferli sínum hjá Ajax lék hann 138 leiki.