Fotbolti.net
16.08.12 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Louis Saha til Sunderland (Staðfest)

Louis Saha til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Louis Saha hefur gengið til liðs við Sunderland en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið.

Saha, sem er 34 ára, mun líklega koma beint inn í leikmannahópinn gegn Arsenal í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.
Saha skoraði þrjú mörk í níu leikjum með Tottenham á síðasta tímabili eftir að hafa komið til félagsins frá Everton.

,,Þetta er frábært tækifæri. Ég er ánægður með að fá tækifæri hjá svona frábæru félagi. Ég er hæstánægður og auðvitað hlakka ég til að byrja að spila með liðinu,\" sagði Saha.

Saha er annar leikmaðurinn sem Sunderland fær í sumar á eftir Carlos Cuellar.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.