16.08.12 - 17:15
Magnús Már Einarsson
Veigar Páll í Stabæk (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Veigar Páll Gunnarsson hefur gengið aftur til liðs við sitt gamla félag Stabæk frá Vålerenga en hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning við félagið í dag.
Veigar Páll er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Stabæk eftir að hafa raðað inn mörkum þar frá 2004-2011 með stuttu stoppi í Frakklandi árið 2009.
Veigar gekk í raðir Vålerenga í fyrra en hann hefur verið inn og út úr liðinu þar að undanförnu og verið óánægður í herbúðum félagsins.
,,Ég er aðallega að fara í Stabæk til að fá gleðina aftur að vera í fótbolta. Ég er að fara þarna til að gefa svolítið af mér fyrir þetta unga lið. Ég er ekki að fara þarna til að reyna að vera bestur,\" sagði Veigar við Fótbolta.net í dag.
Stabæk situr í neðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með tíu stig eftir nítján leiki en með liðinu leika einnig Bjarni Ólafur Eiríksson og Elfar Freyr Helgason.
Sjá einnig:
Veigar Páll á leið til Stabæk á nýjan leik