Arsenal líklegt til að fá Eze - Arsenal hefur enn ekki náð samkomulagi um Gyökeres - Napoli vill Nunez
   fös 16. ágúst 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Risaslagur á Etihad
Liverpool í opinni dagskrá
Önnur umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer af stað í hádeginu á morgun þegar Arsenal tekur á móti Burnley, í beinni útsendingu hjá Símanum.

Bæði lið byrjuðu tímabilið á sigri og skoraði Jóhann Berg Guðmundsson í 3-0 sigri Burnley gegn Southampton á meðan Pierre-Emerick Aubameyang gerði sigurmark Arsenal gegn Newcastle.

Liverpool heimsækir Southampton í 14:00 leiknum sem verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Á sama tíma eiga Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton heimaleik gegn Watford. Þar mun Marco Silva mæta sínum fyrrum lærisveinum og Richarlison sínum fyrrum liðsfélögum.

Frábærum laugardegi lýkur með stórleik, þar sem Manchester City mætir Tottenham. Þessi lið mættust í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í vor og úr varð ótrúleg skemmtun. Því er mikil eftirvænting fyrir þessa viðureign.

Nýliðar Sheffield United mæta Crystal Palace á sunnudaginn áður en Chelsea fær Leicester í heimsókn.

Síðasti leikur umferðarinnar fer fram á mánudagskvöldið. Wolves tekur þar á móti Manchester United.

Laugardagur:
11:30 Arsenal - Burnley (Síminn Sport)
14:00 Brighton - West Ham
14:00 Everton - Watford
14:00 Norwich - Newcastle
14:00 Southampton - Liverpool (Sjónvarp Símans)
14:00 Aston Villa - Bournemouth
16:30 Man City - Tottenham (Síminn Sport)

Sunnudagur:
13:00 Sheffield Utd - Crystal Palace (Síminn Sport)
15:30 Chelsea - Leicester (Síminn Sport)

Mánudagur:
19:00 Wolves - Man Utd (Síminn Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Burnley 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leeds 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Sunderland 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Leicester 38 6 7 25 33 80 -47 25
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
19 Ipswich Town 38 4 10 24 36 82 -46 22
20 Southampton 38 2 6 30 26 86 -60 12
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir