16.09.17 - 18:31
Brynjar Ingi Erluson
Redknapp látinn fara frá Birmingham (Staðfest)

Harry Redknapp er hættur með Birmingham

Mynd: Getty Images

Harry Redknapp er hættur með Birmingham

Mynd: Getty Images
Enska Championship-félagið Birmingham City lét Harry Redknapp taka poka sinn hjá félaginu í dag eftir sex töp í röð. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu.
Birmingham tapaði 3-1 fyrir Preston North End í dag en þetta var sjötta tap liðsins í röð.
Redknapp tók við liðinu í apríl á þessu ári en fékk afar fáa leiki til þess að sanna sig í starfi.
Birmingham er aðeins með fjögur stig í næst neðsta sæti deildarinnar.
Óvíst er hver tekur við liðinu af Redknapp.