Fotbolti.net
16.09.17 - 16:27
Daníel Geir Moritz

Viktor Jóns: Er samningsbundinn og aldrei liðið betur

Auglýsing
Viktor setti tvö gegn Selfossi í dag

Viktor setti tvö gegn Selfossi í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor J&oacute;nsson var &ouml;flugur &iacute; 4-0 sigri &THORN;r&oacute;ttar &aacute; Selfossi &iacute; dag. Viktor hefur veri&eth; lang &ouml;flugastur &iacute; s&oacute;knarleik &THORN;r&oacute;ttar &iacute; sumar og munu li&eth; vafal&iacute;ti&eth; horfa til hans me&eth; a&eth; spila &iacute; Pepsi deildinni n&aelig;sta vetur. Me&eth; &uacute;rslitunum &iacute; dag er lj&oacute;st a&eth; &THORN;r&oacute;ttur endar ekki ofar en &iacute; &thorn;ri&eth;ja s&aelig;ti en HK getur fari&eth; upp &iacute; 3. s&aelig;ti&eth; &iacute; lokaumfer&eth;inni.<br />
„Það er bara flott. Auðvitað ætluðum við okkur upp. Ef við hefðum spilað eins og við gerðum í fyrri hálfleik hefðum við pakkað þessari deild saman. Maður náði að skora tvö mörk þarna og leggja upp eitt. Þetta voru aðeins öðruvísi mörk en ég hef verið að skora í sumar en ég var að leita að þessu þriðja marki og sárt að ná því ekki inn en ég kvarta ekki,“ sagði Viktor eftir leik.



Framtíð Viktors hefur aðeins verið á milli tannanna á fólki og var hann spurður út hana. „Ég er með samning hérna og hef áhuga á að vera hér áfram. Auðvitað langar mann að spila í Pepsi deildinni og ég tel mig hafa gæði til að spila í Pepsi deild. Þróttur er mitt félag núna og mig langar að fara upp með þeim. Næsta tímabil er ekki fyrr en eftir 7 mánuði, þannig að við sjáum bara til. Það er geggjað að vera hérna og ég dýrka þennan klúbb. Andrúmsloftið og strákarnir eru bara frábærir og mér hefur sjaldan liðið jafn vel í fótbolta á ævinni og hef mikinn áhuga á að halda því áfram bara.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.