Fotbolti.net
20.07.26 - 16:13
Elvar Geir Magnússon

Slóvaki sem hefur áður dæmt á Íslandi verður í Fossvoginum

Filip Glova að störfum í Kaplakrika 2021.

Filip Glova að störfum í Kaplakrika 2021.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Annað kvöld leika Íslandsmeistarar Víkings fyrri leik sinn gegn ísraelsku meisturunum Hapoel Be'er Sheva í forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í Fossvogi og hefst klukkan 19:00.

Dómarar leiksins koma frá Slóvakíu en aðaldómari verður Filip Glova en hann er 38 ára. Glova hefur áður komið til Íslands til að dæma Evrópuleik, það var leikur FH og Rosenborgar 2021 þar sem norska liðið vann 2-0 útisigur.

Notast verður við VAR myndbandsdómgæslu í leiknum en VAR dómarinn heitir Michal Ocenas.
Íslensku liðin í Sambandsdeildinni
Þrjú íslensk lið verða í eldlínunni í forkeppni Sambandsdeildarinnar í vikunni. Vestri fer til Lettlands og mætir RFS. Aaron Wyn Jones frá Wales dæmir þann leik.

Stjarnan tekur á móti Ilves Tampere frá Finnlandi. Hinn sænski Oscar Johnson verður með flautuna í Garðabæ. Þá leikur Valur gegn Zrinjski Mostar á Hlíðarenda. Dómararnir koma frá Belarús og Amine Kourgheli verður aðaldómari.

Íslenskir dómarar í Sambandsdeildinni
Íslenskir dómarar verða að störfum í Sambandsdeildinni á fimmtudag. Helgi Mikael Jónasson dæmir leik Liepaja og Austría Vín sem fram fer í Lettlandi. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson verða aðstoðardómarar og Jóhann Ingi Jónsson fjórði dómari.

Þá fer Ívar Orri Kristjánsson til Slóveníu og dæmir leik Aluminij og Dinamo City frá Albaníu. Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson verða aðstoðardómarar og Þórður Þorsteinsson Þórðarson fjórði dómari.
Helgi Mikael fær Evrópuverkefni.

Helgi Mikael fær Evrópuverkefni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.