„Makleg málagjöld argentínska andfótboltans“

Enzo Fernandez fékk að líta rauða spjaldið.

Mynd: EPA

Íþróttafréttamaðurinn Krishan Davis hjá Goal segir að sigur Spánverja gegn Argentínumönnum í úrslitaleik HM hafi verið sigur fyrir fótboltann.
Spánn var mun sóknarhugaðra liðið í úrslitaleiknum og skoraði eina markið sem skildi liðin að í framlengingu.

TENGT EFNI
Hegðunin í úrslitaleiknum skammarlegur blettur á ferli Messi
„Úrslitaleikurinn var harður bardagi en að lokum var þetta tvímælalaust sigur fótboltans yfir skítlegum bellibrögðum og óheiðarleika," segir Davis.
„Lærisveinar Lionel Scaloni virtust staðráðnir í að sparka andstæðingana af vellinum og í 106 mínútur skilaði þessi grófi og ófágaði stíll þeirra árangri."
„Argentína hlaut makleg málagjöld fyrir andfótbolta sinn á stærsta sviði íþróttarinnar. Nokkrir leikmenn liðsins gengu of langt, þar á meðal Enzo Fernandez og Leandro Paredes; sá fyrrnefndi fékk að líta rauða spjaldið að óþörfu, en sá síðarnefndi braut ítrekað af sér og virtist síðan slá til spænskra leikmanna eftir að flautað hafði verið til leiksloka."