Fotbolti.net
16.09.19 - 18:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Aston Villa og West Ham: Marvelous byrjar

Jack Wilshere með aðdáanda á Villa Park. Hann byrjar á bekknum.

Jack Wilshere með aðdáanda á Villa Park. Hann byrjar á bekknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er einn leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, síðasti leikur fimmtu umferðar deildarinnar.
Aston Villa tekur á móti West Ham á Villa Park í Birmingham. Fyrir leikinn er West Ham með sjö stig í níunda sæti og Aston Villa í 18. sæti með þrjú stig.

Dean Smith, stjóri Villa, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Crystal Palace fyrir landsleikjahlé. Marvelous Nakamba og Anwar El Ghazi koma inn í liðið fyrir Douglas Luiz og Trezeguet.

Manuel Pellegrini er lítið að breyta og byrjar hann með sama byrjunarlið og spilaði í 2-0 sigri á Norwich fyrir landsleikjahlé.

Byrjunarlið Aston Villa: Heaton, Guilbert, Engels, Mings, Taylor, Nakamba, Jota, McGinn, Grealish, El Ghazi, Wesley.
(Varamenn: Steer, Elmohamady, Konsa, Hourihane, Lansbury, Luiz, Davis)

Byrjunarlið West Ham: Fabianski, Fredericks, Diop, Ogbonna, Masuaku, Rice, Noble, Anderson, Lanzini, Yarmolenko, Haller.
(Varamenn: Jimenez, Balbuena, Zabaleta, Wilshere, Fornals, Snodgrass, Ajeti)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.