Fotbolti.net
16.10.12 - 10:42
Elvar Geir Magnússon

Helgi Sig ráðinn aðstoðarþjálfari Fram (Staðfest)

Helgi Sig ráðinn aðstoðarþjálfari Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Þorvaldar Örlygssonar hjá Fram í Pepsi-deild karla. Helgi kemur frá Víkingi Reykjavík þar sem hann var spilandi aðstoðarþjálfari.

Á heimasíðu Fram kemur fram að Helgi verði í þriggja manna þjálfarateymi sem mun hafa umsjón með meistara- og 2. flokki félagsins.
Jóhann Ingi Jóhannsson er þriðji maðurinn í teyminu en hann hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks karla. Markmiðið með þessu er að auka samstarf meistara- og 2. flokks.

Helgi sagði í samtali við Vísi.is að enn væri óákveðið hvort hann myndi spila með Fram eða ekki. „Það hefur bara ekki verið rætt, Ég hef allavega ekki gefið út neina yfirlýsingu um að ég sé hættur,\" sagði Helgi við Eirík Stefán Ásgeirsson hjá Vísi.

Framarar voru í fallbaráttu í Pepsi-deildinni í sumar en björguðu sér í lokaumferð eins og oft áður. Eftir tímabilið skrifaði Þorvaldur Örlygsson undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.