16.10.12 - 16:41
Magnús Már Einarsson
Edvard Börkur í Val (Staðfest)

Edvard Börkur í leik með Tindastóli í sumar.

Mynd: Valgeir Kárason

Valur hefur fengið miðvörðinn Edvard Börk Óttharsson til liðs við sig frá Tindastóli en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Þessi tvítugi leikmaður er bróðursonur Barkar Edvardssonar formanns knattspyrnudeildar Vals. Edvard Börkur lék með Val í yngri flokkunum og er því að ganga til liðs við sitt gamla félag.

,,Ég er gríðarlega ánægður með að vera kominn aftur heim. Þetta er flottur klúbbur og það er gott að vera kominn aftur þangað. Það eru spennandi tímar framundan og mér líst vel á Magga (Magnús Gylfason) og það sem hann ætlar að gera,\" sagði Edvard Börkur við Fótbolta.net síðdegis í dag.
Edvard Börkur hefur leikið með meistaraflokki Tindastóls undanfarin tvö ár en hann var valin bestur á lokahófi félagsins á dögunum. Edvard Börkur segist hafa öðlast mikla reynslu á Sauðárkróki.
,,Það var flottur hópur þar og Donni (Halldór Jón Sigurðsson) er góður þjálfari. Hann gaf mér gott tækifæri og ég nýtti það,\" sagði Edvard Börkur.