Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 16. október 2021 12:18
Brynjar Ingi Erluson
Mane þriðji Afríkumaðurinn sem rýfur hundrað marka múrinn
Sadio Mane skoraði 100. mark sitt í ensku úrvalsdeildinni
Sadio Mane skoraði 100. mark sitt í ensku úrvalsdeildinni
Mynd: EPA
Sadio Mane, leikmaður Liverpool, skoraði 100. mark sitt í ensku úrvalsdeildinni er hann kom liðinu yfir gegn Watford á Vicarage Road í dag.

Mane gerði markið á 8. mínútu eftir frábæra utanfótarsendingu frá Mohamed Salah.

Þetta var 100. mark hans í ensku úrvalsdeildinni og er hann þriðji Afríkumaðurinn sem nær þessum áfanga.

Didier Drogba og liðsfélagi hans, Salah, hafa einnig gert það en Drogba skoraði 104 mörk á tíma hans hjá Chelsea á meðan Salah tókst að rjúfa múrinn fyrr á þessari leiktíð.

Salah er kominn með 103 mörk í deildinni. Hann gerði 21 mark á tveimur tímabilum með Southampton en hefur gert 79 mörk fyrir Liverpool.


Athugasemdir
banner
banner