17.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Rooney búinn að skrifa undir samning hjá Everton!! (Staðfest)
Að venju erum við fyrstir með fréttirnar hér á Fótbolti.net. Wayne Rooney skrifaði nú rétt í þessu undir nýjan samning hjá Everton og verður því samningsbundinn félaginu til loka 2005-2006 tímabilssins. Rooney er 17 ára gamall og sló í gegn í leik gegn Arsenal í október er hann skoraði frábært sigurmark undir lok leikssins eftir að hann kom inná sem varamaður, þá var hann aðeins 16 ára gamall. Undirskrift samnings var upphaflega frestað á meðan Rooney skipti um umboðsmann en þó voru farnar að renna á menn tvær grímur og janfvel talið að Rooney myndi falla frá samninaviðræðunum. En eins og áður sagði er guttinn nú búinn að skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannasamning.
