Fotbolti.net
17.01.18 - 15:49
Magnús Már Einarsson

Cardiff fær Grujic á láni frá Liverpool (Staðfest)

Marko Grujic.

Marko Grujic.

Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff hefur fengið miðjumanninn Marko Grujic á láni frá Liverpool út tímabilið.

Hinn 21 árs gamli Grujic á 14 leiki að baki með aðalliði Liverpool en hann kom til félagsins frá Rauðu Stjörnunni árið 2016.

Grujic hjálpaði Serbum að vinna HM U20 ára landsliðia árið 2015 en hann á fjóra leiki að baki með A-landsliðinu.

Grujic mun meðal annars berjast við Aron Einar Gunnarsson um sæti á miðjunni hjá Cardiff.

Aron Einar er meiddur í augnablikinu en vonast til að snúa aftur í liðið í febrúar.
Cardiff er í 3. sæti í Championship deildinni og í harðri baráttu um að komast upp um deild.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.