Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 17. janúar 2022 09:55
Elvar Geir Magnússon
Newcastle vill Navas - Ensk stórlið horfa til Araujo
Powerade
Markvörðurinn Keylor Navas.
Markvörðurinn Keylor Navas.
Mynd: Getty Images
Diego Carlos hjá Sevilla.
Diego Carlos hjá Sevilla.
Mynd: Getty Images
Líklegast að Dembele fari í Man Utd eða Juventus.
Líklegast að Dembele fari í Man Utd eða Juventus.
Mynd: EPA
Ronald Araujo til Englands?
Ronald Araujo til Englands?
Mynd: EPA
Á förum frá Leicester? Líklegt.
Á förum frá Leicester? Líklegt.
Mynd: Getty Images
Það er rosalega mikill mánudagur. Þá er best að sökkva sér í slúðrið. Navas, Van de Beek, Kurzawa, Dembele, Vlahovic, Tielemans, Carroll og fleiri koma við sögu. Hver verður næsti stjóri Everton?

Newcastle United íhugar að gera tilboð í Keylor Navas (35), markvörð Paris Saint-Germain. Franska félagið vill halda Kosta-Ríkamanninum. (RMC Sport)

Hollenski miðjumaðurinn Donny van de Beek (24) hefur hafnað því að fara á lán til Newcastle vegna stöðu liðsins í ensku úrvalsdeildinni. (Telegraph)

Newcastle er að komast nær því að klófesta brasilíska varnarmanninn Diego Carlos (28) frá Sevilla. (Express)

Newcastle hefur hinsvegar mistekist í tilraunum sínum til að kaupa hollenska varnarmanninn Sven Botman (22) frá Lille. (90min)

Chelsea hefur áhuga á franska varnarmanninum Layvin Kurzawa (29) og vill fá hann lánaðan frá Paris Saint-Germain. Viðræður hafa þó ekki farið af stað. (Fabrizio Romano)

Southampton er í viðræðum við Chelsea um að kaupa lánsmanninn Armando Broja (20). Albaninn hefur leikið vel fyrir Dýrlingana. (Guardian)

Aston Villa er að ganga frá lánssamningi við sænska markvörðinn Robin Olsen (32) frá Roma. Hann var hjá Sheffield United á láni fyrri hluta tímabilsins. (Express & Star)

Juventus íhugar að gera tilboð í franska sóknarmanninn Anthony Martial (26) hjá Manchester United. (Calciomercato)

Chelsea hefur sett sig í samband við Reims um möguleg sumarkaup á franska sóknarmanninum Hugo Ekitike (19). (Footmercato)

Newcastle vill ráða Peter Kenyon, fyrrum framkvæmdastjóra Manchester United og Chelsea, í starf bak við tjöldin. (Sun)

Franski vængmaðurinn Ousmane Dembele (24) mun líklega yfirgefa Barcelona og er líklegast að hann fari í Manchester United eða Juventus. Chelsea og Bayern Müncen hafa líka áhuga. (Sport)

Arsenal hefur gert 50 milljóna punda tilboð í Dusan Vlahovic (21), sóknarmann Fiorentina. Félagið býður Lucas Torreira sem hluta af tilboðinu. (Metro)

Arsenal hefur áfram áhuga á Djed Spence (21) en hægri bakvörðurinn er hjá Nottingham Forest á láni frá Middlesbrough. Ítölsku félögin Roma og Inter horfa einnig til hans. (Mirror)

Juventus vill fá Ganverjann Thomas Partey (28) leikmann Arsenal ef félagið býður í brasilíska miðjumanninn Arthur Melo. (Sky Sports Italy)

Úrúgvæski miðvörðurinn Ronald Araujo (22) hjá Barcelona hefur ekki skrifað undir nýjan samning. Manchester United, Liverpool og Chelsea fylgjast með þróun mála. (Marca)

Leicester City býr sig undir að missa belgíska miðjumanninn Youri Tielemans (24). (Mirror)

Arsenal vill fá Tielemans, sem á átján mánuði eftir af núgildandi samningi við Leicester. (Sun)

Borussia Mönchengladbach er opið fyrir því að selja svissneska miðjumanninn Denis Zakaria (25) í janúarlugganum. Manhcester United vill fá hann. (Kicker)

Hætta er á að United missi af því að klófesta Amadou Haidara (23) miðjumann RB Leipzig. Malímaðurinn er fáanlegur fyrir 33 milljónir punda en Newcastle United hefur einnig áhuga. (Mirror)

Veljko Paunovic, stjóri Reading, er bjartsýnn á að enski sóknarmaðurinn Andy Carroll (33) verði áfram hjá félaginu eftir að skammtímasamningur hans rann út á laugardaginn. Burnley hefur áhuga á Carroll. (Sun)

Everton ætlar að ráða Duncan Ferguson og Leighton Baines sem stjóra til bráðabirgða eftir að Rafael Benítez var rekinn. (Football Insider)

Margir innan Everton vilja fá Roberto Martínez, sem nú þjálfar Belgíu, aftur til félagsins. Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Everton og nú þjálfari Derby, og Graham Potter hjá Brighton eru einnig í umræðunni. (BBC)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner