Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. janúar 2023 21:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
BBC biðst afsökunar á óhljóðum í beinni útsendingu - Sökudólgurinn stígur fram
Vandræðalegur
Vandræðalegur
Mynd: Twitter

Áhorfendur BBC ráku upp stór augu, já eða eyru, þegar Danny Murphy og Gary Lineker voru að ræða málin yfir leik Wolves og Liverpool í enska bikarnum í kvöld.


Skyndilega urðu menn ansi vandræðalegir þegar fóru að heyrast hávær hljóð úr, að er virtist, fullorðinsmynd. BBC hefur beðið afsökunnar á atvikinu.

„Við biðjum áhorfendur sem móðguðust yfir útsendingunni í kvöld. Við erum að rannsaka hvað gerðist," segir í yfirlýsingu BBC.

Maður að nafni Daniel Jarvis sem gengur undir nafninu Jarvo69 á Youtube ber ábyrgð á þessu atviki en hann birti myndband á Twitter þar sem hann sýnir undirbúninginn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner