Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. mars 2021 22:31
Aksentije Milisic
Suarez gengur bölvanlega að skora á útivelli í Meistaradeildinni
Mynd: Getty Images
Chelsea og Atletico Madrid áttust við í kvöld í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en þetta var síðari leikur liðanna.

Chelsea vann mjög þægilega 2-0 sigur og fer því örugglega áfram í 8-liða úrslitin. Atletico gekk illa að ógna marki heimamanna og átti tæplega færi í leiknum.

Luis Suarez fann sig enganveginn í leiknum í kvöld en hann var tekinn af velli eftir tæpan klukkutíma leik.

Suarez hefur gengið hrikalega illa upp við mark andstæðingana á útivelli í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn í kvöld var númer 25 í röð sem Suarez tekst ekki skora á útivelli í Meistaradeildinni.

Síðasta mark hans á útivelli í þessari keppni kom gegn Roma árið 2015.


Athugasemdir
banner
banner