Í kvöld geta fjögur lið tryggt sér sæti í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu, en þrjú lið þurfa kraftaverk til þess að komast áfram.
Portúgalska liðið Sporting mætir Bodö/Glimt í Portúgal, en það þarf að vinna upp þriggja marka forskot norska liðsins.
Bodö/Glimt kemur sér í sögubækurnar með því að komast í 8-liða úrslitin.
Chelsea tapaði fyrir PSG, 5-2, í Frakklandi og þarf einnig að vinna upp þriggja marka forskot. Trúin flytur fjöll, en miðað við frammistöðu Chelsea upp á síðkastið er erfitt að sjá þá komast áfram.
Lærisveinar Pep Guardiola í Manchester City töpuðu fyrir Real Madrid, 3-0, í fyrri leiknum í Madríd. Það er sömuleiðis mjög erfitt að sjá sigursælasta lið keppninnar missa þriggja marka forskot niður, en sjáum hvað til setur.
Viðureign Arsenal og Bayer Leverkusen gæti reynst töluvert spennandi en staðan þar er 1-1 eftir fyrri leikinn. Seinni leikurinn er á Emirates-leikvanginum í Lundúnum.
Leikir dagsins:
17:45 Sporting - Bodö/Glimt (0-3 í einvíginu)
20:00 Arsenal - Leverkusen (1-1 í einvíginu)
20:00 Chelsea - PSG (2-5 í einvíginu)
20:00 Man City - Real Madrid (0-3 í einvíginu)
Athugasemdir


