Í kvöld halda 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar áfram með fjórum áhugaverðum leikjum. Hvaða lið verða fyrst til að komast inn í 8-liða úrslitin?
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Gylfi Tryggvason
Sporting 2 - 1 Bodö/Glimt (0-3)
Hvað á maður að segja? Bodö búnir að gera lítið úr hverjum spámanninum á fætur öðrum. Sporting eiga ekki möguleika í þessu einvígi en þeir hljóta að geta unnið þennan leik. 2-1.
Arsenal 1 - 0 Bayer Leverkusen (1-1)
Arsenal-vélin er komin á allra síðustu dropana, þeir eru farnir að kreista út sigra bara einhvern veginn sem er mikið styrkleikamerki á þessum tímapunkti tímabils. Held þeir kreisti fram eitt mark og verji það forskot út leikinn. Boltinn verður í leik í 13 mínútur í seinni hálfleik.
Chelsea 1 - 2 PSG (2-5)
Chelsea eru á einhverri magnaðri vegferð. Joao Pedro kemur þeim yfir snemma og menn fá trú á verkefninu en Chelsea eru ekki nógu góðir til að vinna PSG.
Man City 3 - 0 Real Madrid (0-3)
City úr leik í baráttunni í enska svo þeir verða að finna leið út úr horninu sem þeir máluðu sig út í á Spáni. Þeir gera það. Tapa samt í vító. Svekk.
Óskar Smári Haraldsson
Sporting 1 - 0 Bodö/Glimt
Ótrúlegir Bodö. Þeir tapa þessum en fara samt áfram. Vinna þeir ekki bara þessa keppni?
Arsenal 2 - 0 Bayer Leverkusen
Ef minnið er ekki að svíkja mig þá minnir mig að ég hafi verið með þennan hárréttan í síðustu viku. Þetta verður 2-0 þægilegur sigur Arsenal. Nota tækifærið og óska Arsenal stuðningsmönnum til hamingju með titillinn í ensku úrvalsdeildinni.
Chelsea 2 - 1 PSG
Chelsea út í ár. PSG gerðu útum einvígið í lokin í síðustu viku og verða í lágri blokk í kvöld. Joao Pedro fékk kallið í landsliðið á kostnað Neymar og hann skorar tvö.
Man City 1 - 1 Real Madrid
Jafntefli I stórleiknum. Real bara betra lið heldur en City í dag og fara verðskuldað áfram.
Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Sporting 2 - 2 Bodö/Glimt
Fótbolti er að verða stærri en þorskurinn í Bodö. Sama hver mótherjinn er þá ryðja þeir gulu og glöðu öllum úr vegi. Sporting tekur áhættu fram á við en þá bara refsa þeir norsku. Ævintýrið er endalaust.
Arsenal 1 - 0 Bayer Leverkusen
Þetta verður engin veisla fyrir þá hlutlausu en Mikel Arteta er drullusama og David Moyes verður límdur við skjáinn með ostapopp. Arsenal - Bodö/Glimt í 8-liða úrslitum.
Chelsea 1 - 2 PSG
Liam Rosenior trúir og trúin getur flutt fjöll. En ekki í þetta sinn.
Man City 2 - 1 Real Madrid
City menn fengu frí á æfingu í gær og mæta ferskir og kátir í leikinn, en bitinn úr fyrri leiknum er of stór til að kyngja. Þetta er keppni Real Madrid og verður það áfram.
Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 18
Fótbolti.net - 14
Gylfi Tryggva - 12
Athugasemdir



