City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   þri 17. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Rüdiger sakar leikmann Getafe um ýkjur - „Talar eins og ég hafi drepið hann“
Antonio Rüdiger er þekktur fyrir fantaskap
Antonio Rüdiger er þekktur fyrir fantaskap
Mynd: EPA
Antonio Rüdiger, varnarmaður Real Madrid, sakar Diego Rico, kollega sinn hjá Getafe, um ýkjur.

Getafe vann Real Madrid 1-0 í byrjun mánaðarins en í leiknum fór Rüdiger með hné í andlitið á Rico sem lá í grasinu.

Rico sagði eftir leikinn að ef hann hefði verið í stöðu Rüdiger þá hefði hann fengið tíu leikja bann og að þarna hafi þýski varnarmaðurinn viljandi reynt að meiða hann.

Þjóðverjinn hefur svarað Rico en hann segist aldrei hafa ætlað að meiða hann.

„Diego Rico talaði eins og ég hafi drepið hann. Ef markmið mitt hefði verið að meiða hann þá hefði hann aldrei staðið upp,“ sagði Rüdiger.


Athugasemdir
banner