Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 10:47
Kári Snorrason
Vill ekki tjá sig um Jóa Berg
Jóhann Berg rifti samningi sínum við Al Dhafra í síðasta mánuði.
Jóhann Berg rifti samningi sínum við Al Dhafra í síðasta mánuði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orðrómurinn um að Jóhann Berg Guðmundsson sé á leið til Breiðabliks er sífellt háværari. Heimildir Fótbolta.net herma að auknar líkur séu á að hann endi í Breiðabliki.

Fótbolti.net hafði samband við Flosa Eiríksson, formann fótboltadeildar Breiðabliks, og bar orðróminn undir hann. Flosi vildi ekki tjá sig um málið og neitaði jafnframt að staðfesta hvort félagið hefði rætt við Jóhann Berg.

Jóhann Berg, sem er 35 ára og uppalinn í Breiðabliki, rifti í febrúar samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Hann er einn af ástsælustu landsliðsmönnum í sögu íslenska boltans, með yfir 100 landsleiki, og var lykilmaður í gullkynslóðinni sem fór á bæði EM og HM.

Athugasemdir
banner
banner