Fotbolti.net
17.05.21 - 14:15
Elvar Geir Magnússon

Jóhannes valinn í hópinn hjá Norrköping í fyrsta sinn

Jóhannes valinn í hópinn hjá Norrköping í fyrsta sinn
Canon

Mynd: Norrköping

Jóhannes Kristinn Bjarnason er í nítján manna leikmannahópi Norrköping sem mætir Varberg í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi sextán ára gamli leikmaður er valinn í aðalliðshóp Norrköping.

Í fyrra lék hann einn leik með KR í Pepsi Max-deildinni, þá fimmtán ára gamall, en faðir hans er Bjarni Guðjónsson sem starfar sem unglingaþjálfari hjá Norrköping.
Ísak Berg­mann Jó­hann­es­son er einnig í leikmannahópn­um en Ari Freyr Skúla­son er á meiðslalistanum.

Norrköping er í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar eftir sex umferðir en leikurinn í dag hefst 16:30 að íslenskum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.