Holland 2 - 0 Austurríki
1-0 Memphis Depay ('11 , víti)
2-0 Denzel Dumfries ('67 )
1-0 Memphis Depay ('11 , víti)
2-0 Denzel Dumfries ('67 )
Holland er komið í 16-liða úrslit EM eftir sigur á Austurríki í annarri umferð riðlakeppninnar.
Holland var miklu sterkari aðilinn í þessum leik og hefði hæglega getað skorað fleiri en tvö mörk.
Fyrra mark liðsins skoraði Memphis Depay á 11. mínútu af vítapunktinum en David Alaba var dæmdur brotlegur innan teigs.
Denzel Dumfries skoraði sitt annað mark í keppninni á 67. mínútu en hann potaði knettinum í netið af stuttu færi eftir undirbúning Donyell Malen.
Holland er búið að tryggja sér farseðilinn í næstu umferð en ljóst er að Austurríki þarf að ná í úrslit í næstu umferð gegn Úkraínu.
Athugasemdir