EM alls staðar heldur áfram göngu sinni í dag. Þetta er búið að vera gott mót hingað til.
Danmörk mætir aftur til leiks eftir hræðilegan atburð sem átti sér stað í síðustu viku. Danmörk spilaði þá við Finnland, en undir lok fyrri hálfleiks hneig Christian Eriksen, leikmaður Danmerkur, niður. Hann fór í hjartastopp en sem betur fer var lífi hans bjargað.
Danir kláruðu leikinn við Finnland og töpuðu 1-0. Í dag mæta þeir aftur til leiks og spila við sterkt lið Belgíu, sem vann 3-0 sigur á Rússlandi í fyrsta leik.
Það er svo einnig leikið í C-riðlinum í dag. Þar spilar Úkraína við Norður-Makedóníu og Hollendingar geta tryggt sér farseðil í 16-liða úrslit með sigri á Austurríki.
fimmtudagur 17. júní
EURO-2020: Group B
16:00 Danmörk - Belgía
EURO-2020: Group C
13:00 Úkraína - Norður Makedónía
19:00 Holland - Austurríki
Athugasemdir