Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta albönsku meisturunum í Egnatia í 1. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Dregið var í höfuðstövðum UEFA í Nyon í Sviss í dag.
Íslendingar ættu að kannast ágætlega við Egnatia, en liðið mætti Víkingum í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar á síðasta ári þar sem Víkingur hafði betur í tveggja leikja rimmu, 2-1.
Víkingar töpuðu fyrri leiknum 1-0 en náðu að snúa taflinu við í seinni leiknum.
Blikar drógust gegn Egnatia og fer fyrri leikurinn fram á heimavelli Egnatia 8/9 og seinni leikurinn 15/16 júlí.
Egnatia vann albönsku deildina annað árið í röð. Efstu fjögur liðin í deildinni fóru í úrslitakeppni og tókst liðinu að rúlla yfir Vllaznia, 4-0, í úrslitaleiknum sem fór fram í síðasta mánuði.
Athugasemdir