Fotbolti.net
17.06.25 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Reiðubúnir til að virkja riftunarákvæði Nico Williams

Reiðubúnir til að virkja riftunarákvæði Nico Williams
Canon

Mynd: EPA

Fabrizio Romano greinir frá því að Barcelona sé reiðubúið til að virkja riftunarákvæðið í samningi Nico Williams við Athletic Bilbao.
Williams er með 58 milljón evru riftunarákvæði en ólíklegt þykir að Börsungar geti greitt alla upphæðina í einu. Stjórnendur þurfa því að ná samkomulagi við Athletic um greiðsludreifingu.

Williams ætlar að ekki að skoða nein samningstilboð fyrr en niðurstaða fæst í viðræðurnar við Barcelona þar sem leikmaðurinn er mjög spenntur fyrir að skipta þangað. Það gæti þó reynst erfitt að finna pláss í byrjunarliðinu þar sem hinir feykiöflugu Lamine Yamal og Raphinha eru byrjunarliðsmenn á köntunum hjá Barca.

Williams verður 23 ára í júlí og er með tvö ár eftir af samningi sínum við Athletic. Arsenal er meðal félaga sem hafa verið orðuð við kantmanninn knáa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.