Fotbolti.net
18.06.26 - 01:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Úsbekistan og Kólumbíu: James Rodriguez og Luis Díaz á sínum stað

Luis Díaz

Luis Díaz

Canon

Mynd: EPA

Kólumbía og Úsbekistan mætast í K-riðli klukkan tvö í nótt. Liðin eru með Kongó og Portúgal, sem gerðu jafntefli, í riðli.

Það eru öllu þekktari stærðir í liði Kólumbíu en þar má nefna Luis Diaz, James Rodriguez, Daniel Munoz, Jefferson Lerma og Davinson Sanchez.

Úsbekistan er á sínu fyrsta heimsmeistaramóti en þar er Abdukodir Khusanov, varnarmaður Man City, langstærsta nafnið.

Fabio Cannvaro, fyrrum landsliðsmaður Ítalíu, er þjálfari Úsbekistan. Hann var heimsmeistari fyrir tuttugu árum.
Kólumbía: Vargas, Munoz, Lucumi, Puerta, Mojica, Sanchez, James Rodriguez, ?Arias, Lerma, Diaz, Suarez.

Úsbekistan: Yusupov, Khusanov, Ashurmatov, Mozgovoy, Shukurov, Urunov, Nasrullaev, Shomurodov (c), Abdullaev, Fayzullaev, Karimov.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.