Pietro Leonardo, framkvæmdastjóri Parma, segir Gabriel Paletta ekki fara frá Parma fyrir minna en 35 milljónir evra.
Paletta er 27 ára gamall miðvörður og hefur verið lykilmaður hjá Parma frá komu sinni frá Boca Juniors fyrir þremur árum.
Paletta er 27 ára gamall miðvörður og hefur verið lykilmaður hjá Parma frá komu sinni frá Boca Juniors fyrir þremur árum.
AC Milan hefur mikinn áhuga á honum auk annara stórliða víða um Evrópu en Leonardo vill ekki selja lykilmenn.
,,Hver sem vill kaupa Paletta verður að borga 35 milljónir, það er ekki flóknara en svo," sagði Leonardo.
Síðar á fréttamannafundinum var Leonardo spurður hvort kantmaðurinn Jonathan Biabiany gæti farið í sumar.
,,Parma reynir að halda í sína bestu menn og þess vegna er Biabiany ekki til sölu."
Athugasemdir