Fotbolti.net
17.07.26 - 11:57
Elvar Geir Magnússon

Infantino með yfirgnæfandi stuðning aðildarsambanda FIFA

Vinsæll meðal aðildarsambanda FIFA.

Vinsæll meðal aðildarsambanda FIFA.

Canon

Mynd: EPA

Gianni Infantino hefur formlegan stuðning yfir 200 landa til endurkjörs til forseta FIFA. Samkvæmt rannsókn Guardian eru aðeins örfá af 211 aðildarsamböndum FIFA ekki búin að senda stuðningsbréf til Infantino.

Það stefnir því allt í að hann verði kjörinn með yfirburðum á ársþingi sem fram fer í mars á næsta ári. Fram kemur að nokkur Evrópulönd hafi enn ekki veitt honum opinberan stuðning en Þýskaland er þar á meðal. Infantino þarf ekki að reiða sig á stuðning Evrópu til að fá yfirgnæfandi umboð.
Infantino á ferð og flugi - Skrapp til Katar í vikunni
TENGT EFNI

Infantino á ferð og flugi - Skrapp til Katar í vikunni

Infantino hefur hlotið talsverða gagnrýni á meðan HM hefur staðið yfir og þrátt fyrir neikvæða fjölmiðlaumfjöllun eru aðildarsamböndin á hans bandi.

„Það þyrfti pólitískan jarðskjálfta til að hrekja Infantino frá völdum þó enn ríki órói eftir að Donald Trump viðurkenndi að hafa þrýst á FIFA að endurskoða rauða spjaldið sem bandaríski framherjinn Balogun fékk," segir í frétt Guardian.

Aðildarsambönd FIFA munu koma saman í New York á morgun. Líklegt er talið að aðalumræðuefnið þar verði fjárhagsleg afkoma HM og allur ávinningur sem gæti skilað sér til sambandanna.
Infantino með yfirgnæfandi stuðning aðildarsambanda FIFA
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.