17.08.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Javier Garrido til Norwich (Staðfest)

Javier Garrido í leik með Lazio.

Mynd: Getty Images

Javier Garrido í leik með Lazio.

Mynd: Getty Images
Búið er að ganga frá öllum pappírum og Norwich hefur tryggt sér þjónustu spænska varnarmannsins Javier Garrido sem kemur á lánssamningi frá Lazio í eitt tímabil.
Eftir tímabilið eiga Kanarí-fuglarnir (eins og Norwich-menn eru kallaðir) möguleika á að binda þennan 27 ára leikmann enn lengur.

„Hann hefur spilaði í spænsku deildinni, ítölsku A-deildinni og ensku úrvalsdeildinni svo hann er hokinn af reynslu,\" segir Chris Hughton, stjóri Norwich.
„Fyrir mér var mikilvæg staðreynd í ferlinu að þarna er leikmaður sem þekkir úrvalsdeildina.\"
Garrido lék 49 úrvalsdeildarleiki með Manchester City á þremur árum áður en hann gekk í raðir Lazio í ítölsku A-deildinni 2010 fyrir óuppgefna upphæð.
Garrido er vinstri bakvörður og var í Ólympíulandsliði Spánar sem gat ekkert í London.