Fotbolti.net
17.08.12 - 10:05
Daníel Freyr Jónsson

Robin van Persie til Manchester United (Staðfest)

Sir Alex Ferguson ásamt Robin van Persie við undirskftina.

Sir Alex Ferguson ásamt Robin van Persie við undirskftina.

Canon

Mynd: Getty Images

Robin van Persie er orðinn leikmaður Manchester United eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára samning hjá félaginu í morgun.
Talið er að United greiði Arsenal 22.5 milljónir strax, en með árangurstengdum greiðslum gæti heildarupphæðin numið 24 milljónum þegar uppi er staðið.



Þetta eru án efa ein stærstu félagaskipti í enska boltanum í langan tíma. Van Persie var fyrirliði Arsenal og er hann núna genginn í raðir þeirra helstu keppinauta um titilinn frá því enska úrvalsdeildin var sett á laggirnar fyrir 20 árum.



,,Það er heiður að skrifa undir hjá Manchester United. Ég hlakka til að feta í fótspor margra frábæra framherja, að koma með reynslu mína og spila minn part í að hjálpa liðinu til sigurs í stærstu keppnum fótboltans,\" sagði Hollendingurinn við undirskriftina.



,,Ég get ekki beðið eftir að byrja.\"



Van Persie er þriðji leikmaðurinn sem United kaupir í sumar. Áður hafði félagið fengið þá Shinji Kagawa og Nick  Powell.

Hollendingurinn var kostinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur og hjá félaginu mun hann mynda eitt sterkasta framherjapar Evrópu ásamt Wayne Rooney.

Stuðningsmenn Manchester United þurfa ekki að bíða lengi eftir að bera kappann augum, en hann mun af öllum líkindum vera í leikmannahópi liðsins þegar liðið mætir Everton á mánudagskvöld í fyrsta leik úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.