17.08.12 - 14:15
Hafliði Breiðfjörð
Oussama Assaidi til Liverpool (Staðfest)

Oussama Assaidi er orðinn leikmaður Liverpool.

Mynd: Getty Images

Liverpool staðfesti á vef sínum rétt í þessu að Oussama Assaidi sé genginn til liðs við félagið frá Heerenveen í Hollandi.
Þessi 24 ára gamli kantmaður gekkst undir læknisskoðun á Melwood, æfingasvæði félagsins, áður en hann skrifaði undir langtíma samning við félagið.
Assaidi er frá Morocco og hefur spilað 22 leiki fyrir landslið þjóðar sinnar.
,,Ég er virkilega ánægður með að spila fyrir þetta stóra félag. Ég fékk strax jákvæða tilfinningu fyrir þessu þegar ég talaði við þjálfarann í fyrsta sinn. Ég fékk tilboð frá öðrum félögum en hef verið að bíða eftir þessari stundu,\" sagði leikmaðurinn á vef Liverpool.
,,Það verður ddraumur að spila með þessum stóru leikmönnum og ég vona að æfingarnar muni hjálpa mér að verða góður leikmaður hérna. Þegar ég horfi á Liverpool er alltaf gott andrúmsloft, stuðningsmennirnir eru frábærir og ég er ánægður með að vera kominn hingað.\"
Assaidi skoraði 20 mörk í 68 leikjum fyrir Heerenveen í hollensku deildinni. Hann er þriðju kaup Brendan Rodgers í sumar, kemur í kjölfar Fabio Borini og Joe Allen.

Heimild: Vefur Liverpool