Fotbolti.net
17.08.12 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Gilles Mbang Ondo til Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna (Staðfest)

Gilles Mbang Ondo til Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gilles Mbang Ondo, fyrrum framherji Grindvíkinga, hefur gengið til liðs við Al Tawoon sem leikur í næstefstu deild í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum.
Ondo lék með Grindavík frá 2008 til 2010 en hann varð markakóngur Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili sínu með liðinu.

Í kjölfarið samdi Ondo við Stabæk þar sem hann skoraði fjögur mörk í 25 leikjum á fyrra.

Síðastliðinn vetur fór Ondo til Sandnes Ulf í Noregi en hann yfirgaf herbúðir félagsins á dögunum.

Ondo, sem er 26 ára, hefur nú samið við Al Tawoon og mun leika með liðinu í Sameinuðu Arabíksu Furstadæmunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.