fös 17. ágúst 2018 18:45
Magnús Már Einarsson
Nyom til Leganes á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Allan Nyom hefur gengið til liðs við spænska félagið Leganes á láni.

Hinn þrítugi Nyom kemur á láni frá WBA en þetta var staðfest í dag.

Nyom, sem er landsliðsmaður Kamerún, kom til WBA frá Watford árið 2016 og hefur síðan þá spilað 69 leiki með liðinu.

Leganes, sem er frá Madrid, endaði í 17. sæti í La Liga á síðasta tímabili en liðið mætir Athletic Bilbao í fyrstu umferðinni á Spáni á mánudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner