Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 17. september 2019 10:35
Magnús Már Einarsson
Bann Neymar stytt um einn leik
Mynd: Getty Images
Íþróttadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að leikbann Neymar í Meistaradeildinni skuli stytt úr þremur leikjum niður í tvo.

Neymar var dæmdur í þriggja leikja bann eftir leik PSG og Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra.

Neymar var brjálaður yfir vítaspyrnu sem Manchester United fékk á 94. mínútu leiksins og lét ófögur orð falla. Fyrir það var hann úrskurðaður í þriggja leikja bann.

Þar sem PSG datt út gegn Manchester United þá á Neymar eftir að afplána allt bannið.

Neymar mun nú missa af leikjum gegn Real Madrid, á morgun, og Galatasaray en hann nær leiknum gegn Club Brugge 22. október.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner