Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 17. september 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Liverpool þá lið sem myndi rétt svo komast í efstu fjögur"
Mynd: Getty Images
Jamie Redknapp, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að mikilvægi varnarmannsins Virgil van Dijk fyrir Liverpool sé gríðarlega mikið.

Redknapp var að vinna sem séfræðingur fyrir Sky Sports um helgina og þar lét hann áhugaverð ummæli falla eftir 3-2 tap Manchester City gegn Norwich.

Franski varnarmaðurinn Aymeric Laporte, sem leikur með Manchester City, verður lengi frá vegna meiðsla og það gæti haft mikil áhrif á Englandsmeistarana.

„Þetta gerir það að verkum að Liverpool eru sigurstranglegri núna," sagði Redknapp um meiðsli Laporte.

„Þetta er eins og ef Liverpool myndi missa Virgil van Dijk úr varnarlínu sinni. Ef þú tekur Van Dijk út úr liðinu hjá Liverpool, þá er það lið sem myndi rétt svo komast í efstu fjögur sætin."
Athugasemdir
banner
banner