Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 17. september 2021 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Evans meiddur - Líklega ekki með gegn Brighton
Fofana og Evans eru báðir meiddir
Fofana og Evans eru báðir meiddir
Mynd: EPA
Jonny Evans, varnarmaður Leicester City á Englandi, verður líklega ekki með liðinu gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Þessi 33 ára gamli miðvörður var í byrjunarliði Leicester í 2-2 jafnteflinu gegn Napoli í Evrópudeildinni í gær en þurfti að fara af velli vegna meiðsla í hálfleik.

Leicester hefur verið í vandræðum upp á síðkastið með meiðsli miðvarða en Wesley Fofana er frá út fyrri hluta tímabilsins og þá hefur Jannik Vestergaard verið að glíma við smávægileg meiðsli undanfarið.

Liðið mætir Brighton á sunnudag og er útlit fyrir að Evans missi af þeim leik.


Athugasemdir
banner