Fotbolti.net
17.10.20 - 18:14
Victor Pálsson

England: Eitt mark dugði Man City gegn Arsenal

England: Eitt mark dugði Man City gegn Arsenal
Canon

Mynd: Getty

Manchester City 1 - 0 Arsenal
1-0 Raheem Sterling('23)
Manchester City vann sinn annan sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag er liðið fékk Arsenal í heimsókn á Etihad völlinn í Manchester.

City hafði byrjað tímabilið örlítið brösuglega og gerði 1-1 jafntefli við Leeds í síðustu umferð eftir 5-2 tap gegn Leicester í annarri umferð.

Arsenal hafði unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum en eina tapið var gegn Liverpool í þriðju umferð deildarinnar, 3-1.

Það var ekki boðið upp á mikið af mörkum á Etihad í dag en það eina kom eftir 23 mínútur er Raheem Sterling kom boltanum í netið.

City sótti hratt á vörn Arsenal sem endaði með skoti Phil Foden á markið sem Bernd Leno varði. Sterling var þó réttur maður á réttum stað og náði frákastinu til að skora.

Bæði félög fengu færi til að skora fleiri mörk en vörn beggja liða hélt og niðurstaðan 1-0 sigur heimamanna sem lyfta sér upp í tíunda sæti deildarinnar.

Arsenal er enn í fimmta sætinu með níu stig, fjórum stigum á eftir toppliði Everton.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.