Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. október 2020 22:00
Victor Pálsson
Sjáðu rauða spjald Richarlison - Búinn að senda Thiago skilaboð
Mynd: Getty
Richarlison, leikmaður Everton, fékk að líta beint rautt spjald fyrr í dag er liðið spilaði við Liverpool.

Richarlison, leikmaður Everton, fékk að líta beint rautt spjald fyrr í dag er liðið spilaði við Liverpool.

Richarlison missti hausinn undir lok leiksins og braut groddaralega á landa sínum Thiago Alcantara.

Michael Oliver reif réttilega upp rauða spjaldið en atvikið átti sér stað á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Leikmaðurinn hefur nú beðist afsökunar og er búinn að senda skilaboð á Thiago.

„Ég ætlaði alls ekki að eiða Thiago. Þegar ég sá að áreksturinn myndi eiga sér stað þá lyfti ég upp fætinum og hitti hann í hnéð," sagði Richarlison.

„Ég er nú þegar búinn að senda honum skilaboð og biðjast afsökunar og ég geri það líka opinberlega. Ég vona að hann sé ekki meiddur og að allt sé í lagi."



Athugasemdir
banner
banner
banner