Kolbeinn Sigþórsson er farinn meiddur af velli í leiknum gegn Moldóvu sem er núna í gangi.
Staðan er 1-0 fyrir Ísland. Birkir Bjarnason skoraði eina mark leiksins til þessa.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Staðan er 1-0 fyrir Ísland. Birkir Bjarnason skoraði eina mark leiksins til þessa.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Á 28. mínútu missteig Kolbeinn sig illa eftir að hann fór upp í skallaeinvígi. Hann haltraði af vell og kom Viðar Örn Kjartansson inn á í hans stað.
Síðustu árin hefur Kolbeinn verið í miklum meiðslavandræðum og vonandi að þetta sé ekki alvarlegt.
Kolbeinn, sem er 29 ára, er búinn að skora 26 mörk í 54 landsleikjum og er jafn Eiði Smára Guðjohnsen yfir markahæstu leikmenn í sögu íslenska landsliðsins. Kolbeinn þarf að bíða eftir öðru tækifæri til að slá metið.
Athugasemdir