Fotbolti.net
13.11.26 - 22:42
Brynjar Ingi Erluson

Markvörðurinn dæmdur í tólf leikja bann

Jesus Owono er kominn í tólf leikja bann

Jesus Owono er kominn í tólf leikja bann

Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Jesus Owono hefur verið úrskurðaður í tólf leikja bann af spænska fótboltasambandinu eftir að hafa orðið Jesus de Miguel að bana í leik Andorra og Tenerife í síðustu viku.
Ekki ljóst hvort Owono snúi aftur á völlinn
TENGT EFNI

Ekki ljóst hvort Owono snúi aftur á völlinn

Owono fékk að líta rauða spjaldið í leik liðanna á mánudaginn í síðustu viku þegar hann rauk út úr marki sínu til að stöðva skyndisókn og koma í veg fyrir dauðafæri sem De Miguel var við það að komast í.

Markvörðurinn fór af miklu afli í De Miguel og rak hnéð í brjóst framherjans, sem fór í kjölfarið í hjartastopp. Nokkrum klukkustundum síðar var hann úrskurðaður látinn.

Samkvæmt Athletic hefur spænska lögreglan hafið rannsókn á dauða De Miguel, en um er að ræða hefðbundið verklag þegar andlát verður af öðrum orsökum en náttúrulegum.

Spænska fótboltasambandið hefur nú úrskurðað Owono í tólf leikja bann, sem er þyngsta mögulega refsingin fyrir brot af þessu tagi.

Owono sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem hann sagðist ganga í gegnum erfiðustu daga lífs síns. Hann dró sig jafnframt úr landsliðshópi Miðbaugs-Gíneu og er algjörlega óvíst hvort hann snúi aftur á fótboltavöllinn.
Markvörðurinn dæmdur í tólf leikja bann
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.