Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 18. janúar 2020 10:48
Elvar Geir Magnússon
Fréttamannafundur hjá Víkingi - Ingvar væntanlega kynntur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur Reykjavík hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 12:30 en þar verður markvörðurinn Ingvar Jónsson væntanlega kynntur sem nýr leikmaður liðsins.

Fylgst verður með fréttamannafundinum í beinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

„Ég hef heyrt í íslenskum klúbbum og það er eitthvað sem ég skoða eins og annað. Ég er bæði spenntur fyrir því að koma heim og vera í lykilhlutverki en það eru forréttindi að vera úti í atvinnumennsku og það kitlar líka. Ég ætla að sjá til hvað gerist," sagði Ingvar í viðtali í október.

Ingvar er uppalinn Njarðvíkingur en var markvörður Stjörnunnar 2011-2014. Síðan þá hefur hann verið að leika í Skandinavíu en samningur hans við Viborg rann út um áramótin.

Hann er 30 ára og á átta landsleiki.

Víkingar urðu bikarmeistarar í fyrra, á fyrsta ári liðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Þórður Ingason hefur verið aðalmarkvörður liðsins.
Athugasemdir
banner
banner