Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. janúar 2020 21:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Fiorentina með sterkan útisigur á Napoli
Chiesa gerði fyrra mark Fiorentina.
Chiesa gerði fyrra mark Fiorentina.
Mynd: Getty Images
Fiorentina skellti Napoli á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni á þessu laugardagskvöldi.

Federico Chiesa kom Fiorentina í forystu á 26. mínútu og bætti Dusan Vlahovic við öðru marki á 74. mínútu. Lærisveinar Gennaro Gattuso í Napoli fundu ekki svör og urðu lokatölur 2-0 fyrir Fiorentina.

Fiorentina og Napoli eru bæði með 24 stig í tólfta og þrettánda sæti deildarinnar.

Í hinum leik kvöldsins vann Sassuolo endurkomusigur gegn Torino á heimavelli. Domenico Berardi skoraði sigurmark Sassuolo á 73. mínútu.

Sassuolo er í 15. sæti deildarinnar og Torino í áttunda sætinu.

Sassuolo 2 - 1 Torino
0-1 Manuel Locatelli ('20 , sjálfsmark)
1-1 Jeremie Boga ('61 )
2-1 Domenico Berardi ('73 )

Napoli 0 - 2 Fiorentina
0-1 Federico Chiesa ('26 )
0-2 Dusan Vlahovic ('74 )

Önnur úrslit:
Ítalía: Immobile með þrennu gegn Sampdoria
Athugasemdir
banner
banner
banner