Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 18. janúar 2020 14:53
Ívan Guðjón Baldursson
Reykjavíkurmót kvenna: Auðvelt fyrir KR og Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tveir leikir fóru fram í Reykjavíkurmóti kvenna í gær. Báðir voru spilaðir í Egilshöllinni, líkt og restin af mótinu.

KR og Fylkir unnu þar leiki sína gegn Þrótti R. og Víkingi R. samkvæmt Úrslit.net. Upplýsingar um markaskorara hafa þó ekki borist.

KR lagði Þrótt af velli með þremur mörkum gegn engu og er því með sex stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. KR lagði Víking örugglega að velli í fyrstu umferð.

Fylkir gjörsamlega rúllaði yfir Víking og vann með sjö marka mun. Fylkisstúlkur eru einnig með sex stig eftir 2-1 sigur gegn Val í fyrstu umferð.

Þróttur er með þrjú stig eftir stórsigur gegn Fjölni í fyrsta leik en Víkingur situr á botninum án stiga.

Þróttur R. 0 - 3 KR

Víkingur R. 0 - 7 Fylkir

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner